Heimsókn finnsku framtíðarnefndarinnar til Íslands

(2401006)
Framtíðarnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
20.02.2024 8. fundur framtíðarnefndar Heimsókn finnsku framtíðarnefndarinnar til Íslands
Fjölmenn sendinefnd þingmanna úr framtíðarnefnd finnska þjóðþingsins kom á fund framtíðarnefndar Alþingis. Halldóra Mogensen, formaður nefndarinnar og Aino-Kaisa Pekonen, formaður finnsku framtíðarnefndarinnar greindu frá því sem er efst á baugi í störfum nefndanna. Jafnframt var rætt um mögulega samvinnu nefndanna.
06.02.2024 6. fundur framtíðarnefndar Heimsókn finnsku framtíðarnefndarinnar til Íslands
Framtíðarnefnd mun eiga fund með framtíðarnefnd finnska þingsins þann 20. febrúar þar sem fjallað verður um hugsanlegt samstarf og mikilvægi framtíðarnefnda hjá þjóðþingum.
16.01.2024 5. fundur framtíðarnefndar Heimsókn finnsku framtíðarnefndarinnar til Íslands
Formaður fór stuttlega yfir dagskrá heimsóknar framtíðarnefndar finnska þingsins til Íslands 20.-21. febrúar.